Ábyrg spilamennska

Að spila á ábyrgan máta er í raun ekki svo erfitt, en margir eiga í vandræðum með að hafa stjórn á fjárhættuspilun. Vinsamlegast kynntu þér sérfræðiábendingar okkar og gagnleg tól sem hjálpa þér að tryggja öryggi þitt við netfjárhættuspil og kynntu þér bestu ábyrgu fjárhættuspilaforritin og önnur úrræði eins og ókeypis hjálparlínur og samtök.

Netfjárhættuspilum er ætlað að vera skemmtileg og fjörug afþreying en það er mögulegt að hlutirnir fari úr böndunum og að þessi skemmtilega afþreying breytist í alvarlega fíkn. Þetta getur verið ógnvænleg staða fyrir leikmennina og aðstandendur þeirra, svo við viljum veita þér bestu tólin og úrræðin til að hjálpa þér að spila á öruggan og ábyrgan hátt.

Fagleg aðstoð

Hvort sem það ert þú eða einhver náinn þér sem á í erfiðleikum með að halda stjórn á fjárhættuspilun, þá er aðstoð í boði. Ókeypis fagaðstoð er í boði um allan heim og ýmsar stofnanir bjóða upp á aðstoð og ráðleggingar á erfiðum tímum. Þetta eru nokkur af stærstu og virtustu stofnunum fyrir ábyrg spilamennsku.

Heimsækja opinberu vefsíðuna

Fyrir alla sem glíma við spilafíkn og önnur vandamál tengd fjárhættuspilum veitir GambleAware sértæka aðstoð og stuðning allan sólarhringinn og án endurgjalds.

Heimsækja opinberu vefsíðuna


Tól og úrræði

Mörg gæðaverkfæri eru í boði á netinu sem eru hönnuð til að hjálpa þér ef þú lendir í spilavanda eða vilt fá frekari upplýsingar um spilavenjurnar þínar og hvort þú gætir verið í hættu á að þróa með þér fíkn. Skoðaðu nokkur af bestu úrræðunum sem standa spilurum til boða um allan heim.

Þessi vefsíða nær yfir breitt svið viðfangsefna sem tengjast fjárhættuspilum. Hún býður upp á úrræði fyrir ungt fólk jafnt sem fullorðna og því er auðvelt að finna viðeigandi og gagnlegt efni. ResponsibleGambling.org veitir einnig upplýsingar um gagnleg úrræði á mismunandi sviðum um allan heim, þar á meðal gjaldfrjálsar hjálparlínur, sjálfsútilokunarkerfi og fleira.

Heimsækja opinberu vefsíðuna

GT appið

GT appið var þróað af GamblingTherapy.org sem úrræði sem þú getur notað til að meta eigin fjárhættuspilavenjur. Auk ýmissa sjálfsmatsprófa býður appið upp á hvatningar, gagnlegar æfingar, rauntíma stuðning og margt fleira sem ætlað er að hjálpa fólki sem glímir við tengsl sín við fjárhættuspil. Appið er í boði fyrir iOS og Android tæki og veitir aðstoð allan sólarhringinn.

Heimsækja opinberu vefsíðuna

Ráð

Ráð til að halda netfjárhættuspilun öruggri og ábyrgri

Algengar spurningar

Mörg mismunandi fjárhættuspilatól eru í boði fyrir þá sem þurfa á þeim að halda. Þessi tól eru hönnuð til að veita þér betri stjórn á spilavönum og gerir þér kleift að setja þér innborgunar og úttektar takmörk, takmarka tímann sem þú eyðir í netspilavítum og jafnvel lokað á sjálfan þig í ákveðin tíma eða varanlega.

Mörg stór samtök telja spilafíkn vera geðræn vandamál. Þetta þýðir að fólk sem glímir við þessi vandamál ætti að leita sér faglegrar aðstoðar og ekki skammast sín fyrir baráttu sína.

Að mestu leyti snýst fjárhættuspil um heppni. Í sumum leikjum eins og póker, spilar færniþátturinn stórt hlutverk, en í öðrum spilavítisleikjum eru niðurstöður þínar mjög háðar heppni og það er engin leið til að hafa áhrif á eða breyta þessum handahófskennda þætti.

Besti tíminn til að hætta að spila í spilakassa er akkúrat þegar þig er farið að langa að spila meira og eltast við tap. Þetta er þegar tilfinningar þínar taka yfir og að halda áfram getur leitt til slæmra ákvarðana og að þú tapir miklu meira en þú hefur efni á.

Ef það eru vísbendingar um að þú gætir verið með spilafíkn þá er það fyrsta sem þú þarft að gera að loka reikningum þínum og fjarlægja þig frá freistingunni. Næst skaltu hafa samband við samtök og fagfólk sem er þjálfað til að hjálpa fólki sem á við þessi vandamál að stríða. Vertu heiðarlegur við þessa aðila og hlustaðu á ráðleggingar þeirra ef þú vilt stöðva spilafíkn.

Mikilvæg tilkynning

Með því að fara inn á þessa síðu vottar þú að þú sért eldri en 18 ára og þú veitir samþykki þitt fyrir því að við notum vafrakökur. Við notum vafrakökur til að bæta vafraupplifun þína, birta sérsniðnar auglýsingar eða efni og greina umferðina hjá okkur. Lesa meira